Birgir Þór er býsnastór

Birgir Þór nýtur lífsins í afmælinu sínu.

Birgir Þór Árnason er mið-barnabarn okkar Elínanr, fæddur 15. febrúar 2005. Bræður hans eru Hringur og Kolbeinn Tumi.

Þegar Birgir Þór byrjaði að tala varð fljótlega ljóst að hann væri kverkmæltur. Með aðstoð foreldra sinna og ömmu tókst honum að vinna bug á kverkmælginni og naut ekki síst til þess aðstoðar Ásthildar Snorradóttur, talmeinafræðings. Í vetur fór svo að kverkmælta r-ið hvarf.

Á hljóðsíðum þessum hefur verið birt hljóðrit frá 2008 þar sem heyrist að pilturinn sagði vel frá, söng og r-ið kom greinilega fram. Í dag, 29. júní 2010, tók ég hann tali og fékk hann til að kveða vísu sem hann kann um sjálfan sig.

Ljósmyndina tók Elín amma á 5 ára afmælisdegi hans.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er þetta fallegur drengur og mikið var þetta fallegur söngur :)

Jóka (IP-tala skráð) 4.7.2010 kl. 23:27

2 identicon

Mikið var gaman að hlusta á þetta. Man svo vel eftir viðtalinu sem tekið var í fjörunni forðum daga. Virðist svo skýr strákur og skemmtilegur, hann Birgir Þór

Helena (IP-tala skráð) 14.7.2010 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fimmtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband