Gamalt æskuhljóð June Munktell

 

Í þeim bátum og skipum, sem Helgi Benediktsson, faðir minn, lét smíða í Vestmannaeyjum og Svíþjóð, voru June Munktell vélar. Ég man enn eftir hljóðinu í vélinni í Skaftfellingi (June Munktell held ég að hafi verið sett í Skafta árið 1948), Gull-Þóri, Hildingi, Frosta og Fjalari, að ógleymdum Hringver. Þetta fann ég á netinu og hoppaði þá heldur í mér hjartað.

http://www.youtube.com/watch?v=ZS-WoGIliPU

Njótið myndskeiðsins og setjið á ykkur góð heyrnartól.

Ef einhver veit um gangfæra June Munktell vél væri gaman að fá að hljóðrita ganginn.

 

arnthor.helgason@simnet.is

 

In English

 

My father‘s fishing boats were equipped with June Munktell machines. My heart jumped when I found this on Youtube

http://www.youtube.com/watch?v=ZS-WoGIliPU

If anyone knows about recordings of old June Munktell machines, please inform.

arnthor.helgason@simnet.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Bergsson

Það er búið að vera lengi á dagskránni hjá mér að reyna ná upptökum af þessum gömlu vélahljóðum.  En það er eins og þessar vélar séu allar að hverfa úr nothæfu ástandi. Ég hef ekki rekist á neina í sumar, var kannski ekki heldur að gefa mig í það að fullum krafti. En það er vert að eltast við þettta eins og best sést á þessu myndbandi

Magnús Bergsson, 25.8.2011 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og tuttugu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband