Helgi VE 333 siglir gegnum tundurduflabelti

Í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja, sem kemur út um þessar mundir, er minningargrein um Andrés Gestsson, sem bjó lengi í Vestmannaeyjum. Hann sigldi m.a. á þeim Skaftfellingi og Helga milli Vestmannaeyja og Fleetwood árin 1940-43 er hann lét af sjómennsku og hugðist hefja nám við Sjómannaskólann í Reykjavík.

Í þættinum "Helgaslysið við Faxasker 7. janúar 1950" sagði Andrés mér frá því er skipið sigldi gegnum tundurduflabelti á leiðinni til Fleetwood. Þessi látlausa frásögn er gott dæmi um einstæða frásagnargáfu Andrésar.

Á eftir er sungið lagið Fagurgræna yndiseyja við ljóð séra Halldórs E. Johnson, sem hann tileinkaði áhöfninni á Helga, en séra Halldór var einn þeirra 10 manna sem fórust með skipinu. Hallgrímur,sem minnst er á í frásögninni, var Júlíusson og var með Helga frá árinu 1942-1950. Atburður sá, er Andrés segir frá, gerðist árið 1943.

Frásögnin var hljóðrituð vorið 1999.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér fyrir að koma þessu á framfæri, Arnþór. Andrés heitinn var góður maður og gefandi, hlýr og þægilegur og gott að heyra rödd hans aftur, varðveitta hér. Ekki veit ég, hvort Elsa eða Elísabet hans lifir, en blessuð sé minning Andrésar Gestssonar og Birgis einkasonar þeirra. – Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson, 6.6.2010 kl. 04:25

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og núlli?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband