Tónlist | 30.4.2010 | 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Njótið þess sem heimasíða hljómsveitarinnar hefur að geyma.
http://www.gemueseorchester.org/
Bloggar | 28.4.2010 | 22:01 (breytt kl. 22:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjónin Sigurbjörg Ólafsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur og Grétar Markússon, arkitekt, eiga unaðsreit við Lambhaga 9 á Álftanesi. Sunnan við húsið er sjávarbakkinn og þar fyrir utan miklar leirur. Margæsir og aðrir vaðfuglar eiga þar griðland og í móunum í kring verpir fjöldi fugla. Lóur voru á vappi hjá þeim hjónum framundir jólin í fyrra.
Sigurbjörg hafði margboðið mér að heimsækja sig og hljóðrita fugla. Við Elín fórum því út á Álftanes sunnudaginn 18. Apríl og heimsóttum þau góðu hjón. Ekki var ætlunin að hljóðrita í ferðinni heldur skoða aðstæður. Nagra Ares BB+ hljóðritinn og tveir Sennheiser ME62 voru þó með í för.
Þegar okkur bar að garði var verið að sinna gömlum heimilisvini, Deutz D30-S dráttarvél frá árinu 1961. Steinn, bróðir Sigurbjargar, sinnti um gripinn, og þar var einnig Markús Sigurðsson, sem hafði gert vélina upp.
Eftir að hafa þegir veitingar rjómapönnukökur, jólaköku o. Fl., fór Steinn einn hring á vélinni. Síðan bauð Sigurbjörg mér í ökuferð og á eftir fór Elín með henni. Eins og sést á myndinni er eins konar söðull á vinstri aurhlíf vélarinnar. Þess vegna er vélarhljóðið meira til vinstri en hljóðið af hjólabúnaðinum og fjöðrunum heyrist vel í hægri hátalaranum. Sé hljóðritið sett í mónó verður hljóðið ekki síðra.
Í spjallinu hér á eftir segja þau Sigurbjörg, Steinn og Markús frá dráttarvélinni. Hljóðritið er örlítið snyrt en ekki klippt í sama mæli og menn neyðast til í útvarpi þar sem tíminn er oft naumt skammtaður.
Einnig fylgja þessari færslu tvö hljóðrit þar sem dráttarvélin kemur í hlað undir stjórn Steins og hann setur hana í gang fyrir mig að nýju. Hið seinna er ökuferðin með Sigurbjörgu. Aðdáendur vélahljóða fá þar nokkuð til að njóta.
Eftir að bloggið var birt sendi Sigurbjörg mér tölvupóst með ítarlegri lýsingu á notkun dráttarvélarinnar. Þar segir m.a.:
Ég hafði mjög gaman af að heyra í gamla "Diggadigg" á upptökunni. Gott að geta látið spila þetta fyrir sig á elliheimilinu ! Ég var hálf gleymin í viðtalinu, þó ég segði að traktorinn hefði verið notaður í allt þá skýrði ég það ekki nánar. Hann var auðvitað notaður við allan heyskap, slá, snúa heyi/ tætla, raka saman , binda og flytja heim. Til allra flutninga var hann ómetanlegur, því vor og haust var gott að geta flutt sauðfé á heyvagni bæði í tengslum við sauðburð, rúningu og svo slátrun á haustin.
Það var skipst á að fara með mjólkurbrúsana niður á brúsapall frá Kirkjulækjarbæjunum sem voru þrír. Við krakkarnir sáum um það þegar við stálpuðumst. Það voru risa stórir mjólkurbrúsar í kælingu í vatnsþrónum sem við þurftum að lyfta uppá vagninn. Þeir voru allt upp í 50 lítra, en flestir voru 40 lítra.
Eins og ég nefndi var farið með fjósaskít á tún í kerru jafnóðum og þannig lærði ég að keyra á milli hlassa á túninu með pabba gangandi á eftir af því hann mokaði af. Nú svo var hann notaður í ferðalög ! Pabbi smíðaði pall aftaná og við fórum öll í langt ferðalag til berja um haustið. Mamma sat auðvitað í virðingarsætinu og við systkinin vorum svo á pallinum allavega sex fædd þá. Við fórum svona upp í Öldu sem er gott berjaland norðvestan við Þríhyrning. Ég man líka eftir að fara með pabba í kaupstaðinn, út í Hvolsvöll, það voru 11-12 km. Ég man að mér var ansi kalt, lítið um hlífðarföt og engin er yfirbyggingin á traktornum. En það var svo gaman að fá að fara með í Kaupfélagið að mér datt ekki í hug að kvarta.
Jæja eins og þú heyrir vekja þessi vélahljóð upp minningar, ég minnist pabba mjög mikið þegar ég heyri í gamla Deutz, bara góðar minningar. Ég get alveg sagt þér að mörgum árum áður en við tókum uppá því að gera upp traktorinn með Markúsar góðu vinnu, þá vorum við hjónin eitt sinn sem oftar á notalegri göngu í góðviðri á Álftanesinu. Þá heyri ég allt í einu Deutz traktor startað í gang, það var mjög hljóðbært ,og ég fékk bara kökk í halsinn og hugsaði bara "pabbi"! Hljóð geta hrifið mann með beint aftur í tímann eins og þú þekkir eflaust manna best. Jæja ég fór þarna alveg á flug, þú fyrirgefur það. Ég gleymdi að útskýra af hverju við kölluðum traktorinn Diggadigg. Þannig var að eldri traktorinn frá 1948 John Deere var með tveggja cylindra bensínvél og hljóðið í honum var svo hart og hvellt , hann var kallaður "Trakti gamli" en hinn malaði góðlega" diggadiggadiggadigg" í samanburðinum.
Bílar og akstur | 21.4.2010 | 08:18 (breytt 24.4.2010 kl. 11:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Föstudaginn 26. Júní héldum við Elín áleiðis úr Reykhólasveitinni norður til Súðavíkur. Námum við staðar við fossinn Dynjandi og nutum þar umhverfisins. Hljóðritaði ég fossinn og reyndi að fanga hin margbreytilegu hljómbrigði. Notaði ég Nagra Ares BB+ og tvo Sennheiser ME62 hljóðnema sem vísuðu u.þ.b 45° hvor frá öðrum. Um 120 cm voru á milli hljóðnemanna.
Myndirnar tók Elín, eiginkona mín, félagi og vinur.
Fyrsta hljóðritið er tekið við neðstu fossana.
Þá kemur Hundafoss.
Síðan var staðnæmst við göngumannafoss.
Nokkru ofar fundum við heppilegan stað þar sem ég settist. Elín hélt áfram upp að Fjallfossi. Þar tóku þýskir ferðamenn af henni myndina sem tengd er þessari færslu ásamt mynda- og hljóðskrám. Þar sem ég beið Elínar og naut nálægðarinnar við fossinn beindi ég hljóðnemunum frá dynjandi hávaðanum. Takið eftir dýpt hljóðsins.
Hljóðritin eru birt í fullum gæðum.
Dynjandisvogur fyrir botni Arnarfjarðar er einstök náttúruperla. Þar er einn fegursti foss landsins og mesti foss Vestfjarða - Dynjandi. Fossinn og umhverfi hans er friðlýstur sem náttúruvætti. Áin Dynjandi rennur ofan af Dynjandisheiði sem liggur í jaðri hálendissvæðis Glámu.
Dynjandi er ótrúlegur á allan hátt og er ein af fegurstu djásnum Íslands. Áin fellur fram af fjallsbrúninni niður nær 100 metra hátt bungumyndað berg með smástöllum. Fossinn breiðir úr sér yfir klappirnar sem eru í reglulegum stöllum og fellur þrep af þrepi.
Bergið er myndað af hörðum hraunlögum og millilögum úr sendnum leir sem eru mun mýkri. Mjúku millilögin hafa gefið eftir undan ágangi jökuls og síðar vatns og fossastigi hefur myndast.
Fossarnir í Dynjandi eru sex. Efst er tilkomumesti fossinn, Fjallfoss, 30 metra breiður efst og um 60 metra breiður neðst. Hann er um 100 metra hár. Neðar í ánni eru Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss. Minnir fossaröðin helst á brúðarslör. Hægt er að ganga á bak við Göngumannafoss. Hvergi á landinu ber fyrir augu fegurra fossasvæði í einni sjónhending.
Dynjandi var aldrei nefndur annað en Dynjandi fyrr en einstaka menn fóru að kalla hann Fjallfoss á fyrri hluta 19. aldar. Fossinn ber nafn með rentu því drunurnar frá honum berast langar leiðir.
http://www.breidavik.is/Is/Naesta_nagrenni/Dynjandi_-_Fjallfoss/
-
Neðstu fossar Dynjandi (hljóðrit)
-
Hundafoss í Dynjandi (hljóðrit)
-
Það er djúpur tónninn í Göngumannafossi (hljóðrit)
-
Drunurnar í Dynjandi heyrast langt að (hljóðrit)
-
Fossarnir í Dynjandi eru ein fegurstu djásn Íslands.
-
Elín Árnadóttir fór alveg upp að rótum Fjallfoss í Dynjandi.
-
Fagur hylur í fossastiganum
-
Dynjandisvogur, myndin tekin neðarlega úr hlíðinni.
-
Einn af neðri fossunum
-
Hljóðritarinn að störfum
-
Þessi mynd af dynjandisvogi er tekin ofar í hlíðinni
-
Efsti foss Dynjandi er Fjallfoss.
-
Dynjandi mynda fjöldi fossa og flúða.
Vatnið | 16.4.2010 | 23:53 (breytt 17.4.2010 kl. 10:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þann 29. júlí 2006 vorum við Elín á leið austur á Stöðvarfjörð. Námum við þá staðar við goðafoss og hljóðritaði ég söng hans. Ef grannt er hlustað má heyra iðuköstin.
Notaður var Nagra Ares-m hljóðriti og Shure VP88 hljóðnemi. Hljóðritað var á 44,1 kílóriðum í 16 bita upplausn. Hljóðritið er birt hér í fullri upplausn.
Vatnið | 14.4.2010 | 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimilishljóð | 10.4.2010 | 23:50 (breytt 15.5.2012 kl. 22:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á aðalfundi Iðunnar 6. mars 2009 kvað hann nokkrar frumortar vísur. Notaður var Shure VP88 við þá hljóðritun.
Enn var Ingimar á dagskrá Iðunnarfundar föstudaginn 9. mars árið 2010. Í það skipti kvað hann vísur eftir Kristján Samsonarson og gerði í upphafi grein fyrir ævi þessa listfenga hagyrðings.
Notaðir voru tveir Sennheiser Me64 hljóðnemar.
Hljóðritin eru birt með leyfi Ingimars.
Kveðskapur og stemmur | 10.4.2010 | 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hljómsveitin Vindbelgirnir hefur fengist við að leika norræn danslög og fyrir nokkru gáfu þeir félagar út disk. Hinn 24. nóvember árið 2007 efndi Félag harmonikuunnenda til tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar stigu þeir Vindbelgirnir á svið og léku nokkur lög. Harmonikur þöndu Friðjón Hallgrímsson og Hilmar Hjartarson. Magnús Rúnar Jónsson lék undir á gítar.
Ég hljóðritaði utan úr sal, var með Nagra Ares BB+ og Shure VP88 hljóðnema.
Hér er ekki um harðsoðna hljóðvershljóðritun að ræða heldur skemmtilegt hljómleikahljóðrit.
Tónlist | 9.4.2010 | 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við Elín sóttum fundinn sem haldinn var á Austurvelli 8. nóvember 2008. Þar var andrúmsloftið lævi blandið. Ræðumenn voru þau Ragnheiður Gestsdóttir, Arndís Björnsdóttir, Sigurbjörg Árnadóttir og Einar Már Guðmundsson. Hörður Torfason stýrði fundinum af sínu alkunna æðruleysi og þeirri fágun sem einkennir alla framkomu hans.
Á öxlinni hékk Nagra Ares BB+ og meðferðis hafði ég Sennheiser MD21U hljóðnema sem nam það sem fyrir eyru bar. Hljóðritið er rúmlega klst langt og er komið hér fyrir sem sagnfræðilegri heimild.
Frumritið er gert með 16 bita upplausn og 44,1 kílóriða tíðni. Vegna lengdar varð að þjappa því í 96 kb/sek.
Stjórnmál og samfélag | 8.4.2010 | 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í fyrra tók ég saman nokkur hljóð sem tengjast vori og sumri.
Við hefjumst handa í fjörunni við Gróttu, höldum þaðan út í eyjuna og skjálfum dálítið í næðingnum. Notaðir voru tveir Sennheiser ME62 og Nagra Ares BB+.
Þaðan er haldið út á göngustíginn meðfram Ægisíðu. Þar verður fyrir okkur pirraður hundur, fuglar syngja, fólk hleypur og hjólar. Þetta var hljóðritað með Nagra Ares-M og Shure VP88 hljóðnema vorið 2006.
Þá greinir frá samskiptum hrafns og sauðkindar. Það hljóðrit fékk ég að láni hjá aðstandendum sýningarinnar Reykjavík 871 +-2, sem allir ættu að sjá.
Næsta hljóðskot er úr öldruðum GMC fjallatrukki sem skrönglaðist upp brattan slóða laugardaginn fyrir páska 2006. Þar notaði ég áfestan hljóðnema við Nagra Ares-M.
Þá er það lítill lækur og að lokum fjaran við Gróttu um miðjan apríl 2009. Þar var notaður Nagra Ares BB+.
Umhverfismál | 8.4.2010 | 08:36 (breytt 9.4.2010 kl. 08:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Aðventan
- Áramótahljóð
- Birds
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Cars and engines
- China
- Dægurmál
- Environmental sounds
- Ferðalög
- Fuglar
- Grímsey
- Heilsa og heilsuvernd
- Heimilishljóð
- Hjólreiðar
- Hringitónar - Ringtones
- Kínversk málefni
- Kínversk tónlist
- Kveðskapur og stemmur
- Lífstíll
- Ljóð
- Lystisemdir lífsins
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Minningar
- Music
- Religion
- Reykjavík
- Samgöngur
- Seltjarnarnes
- Sjórinn
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Strandabyggð
- Sögur af sjó
- Tónlist
- Trúmál
- Umhverfishljóð
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vatnið
- Veitingahús
- Veraldarvefurinn
- Vestmannaeyjar
- Vélar
- Viðtöl
- Vindurinn - The wind
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Water and waterfalls
- Wind
- Þjóðlegur fróðleikur
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.9.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 65964
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar